Veftré Print page English

Viðtalsþáttur CNN


Alþjóðasjónvarpsstöðin CNN mun um helgina senda út þátt um framtíð orkumála og er viðtal við forseta Íslands meðal helstu efnisatriða þáttarins. Charles Hodson, einn helsti fréttaþulur CNN, tók viðtalið við forseta á Bessastöðum í aprílmánuði en þá kom sérstakt tökulið frá CNN til landsins og safnaði ítarlegu myndefni um Ísland.

Þátturinn ber heitið Principal Voices og verður sýndur á heimsrás CNN fjórum sinnum um helgina: laugardaginn 21. júní kl. 6 að morgni að íslenskum tíma og svo kl. 14 og kl. 19 síðdegis; sunnudaginn 22. júní verður þátturinn sýndur kl. 6 að morgni að íslenskum tíma.