Veftré Print page English

Sendiherra Sviss


Forseti á fund með Denis Feldmeyer sendiherra Sviss á Íslandi. Rætt var um reynsluna af samstarfi innan EFTA og hin ólíku tengsl Íslands og Sviss við Evrópusambandið. Einnig var fjallað um hvernig rannsóknir á Íslandi og í Sviss geta nýst í ljósi loftslagsbreytinga til rannsókna á jöklum í öðrum heimshlutum, svo sem í Himalajafjöllum.