Veftré Print page English

Sendiherra Tælands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Tælands, frú Cholchineepan Chiranond, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um vaxandi framlag tælenska samfélagsins á Íslandi á mörgum sviðum íslensks þjóðfélags sem og möguleika á nýtingu jarðhita í Tælandi, og þróun viðvörunarkerfis vegna jarðskjálfta, byggt á vinnu íslenskra vísindamanna og sérfræðinga.