Veftré Print page English

Sendiherra Svasílands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Svasílands á Íslandi, frú Mary M. Kanya, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Sendiherrann lýsti glímu landsins við vaxandi útbreiðslu eyðni og þörf á aðstoð við þróun heilbrigðisþjónustu auk aðgangs að ódýrum lyfjum á þessu sviði.