Veftré Print page English

Green Globe vottun Snæfellsnes


Forseti tekur þátt í athöfn í Grundarfirði þar sem staðfest er Green Globe vottun Snæfellsness og lýst metnaðarfullum áformum um hvernig hrinda megi henni í framkvæmd. Vottunin tekur til fjölmargra sviða, svo sem orkunýtingar, vatnsbúskapar, verndunar vistkerfa , endurheimtar votlendis, loftgæða og hávaðamengunar, fráveitumála og lágmörkunar úrgangs. Forseti flutti ávarp við athöfnina.