Veftré Print page English

Alþjóðlegu vatnsaflssamtökin


Forseti á fund með Refaat Abdel-Malek forseta alþjóðlegu vatnsaflssamtakanna, International Hydropower Association, ásamt nokkrum forystumönnum íslenskra orkufyrirtækja. Rætt var um dagskrá alþjóðlegs fundar sem samtökin munu halda á Íslandi á næsta ári og mikilvægi vatnsafls til að mæta orkuþörf mannkyns á komandi áratugum. Einnig var fjallað um hvernig reynsla og þekking Íslendinga á þessu sviði getur nýst öðrum þjóðum, einkum með tilliti til þess að í Afríku er stór hluti vannýtts vatnsafls í veröldinni.