Veftré Print page English

Norska Stórþingið


Forseti tekur á móti orku- og umhverfisnefnd norska Stórþingsins sem heimsækir Ísland. Rætt var um árangur Íslands og Noregs í nýtingu hreinnar orku og nauðsyn alþjóðlegrar samvinnu á því sviði til að koma í veg fyrir varanlegar loftslagsbreytingar. Einnig var fjallað um rannsóknir á Norðurslóðum og brýn verkefni sem þar blasa við en þau knýja á um enn víðtækari samvinnu Noregs og Íslands en áður.