Veftré Print page English

Sendiherra Indlands


Forseti ræðir við sendiherra Indlands á Íslandi Mahesh Sachdev sem aðsetur hefur í Noregi en hann lætur senn af störfum því Indverjar hafa ákveðið að stofna sendiráð á Íslandi. Rætt var um hina fjölþættu aukningu sem orðið hefur í samstarfi Íslands og Indlands á síðari árum og möguleika í framtíðinni. Viðstaddir voru forsvarsmenn úr íslensku viðskiptalífi og vísindamenn sem átt hafa samstarf við Indverja.