Veftré Print page English

Mitsubishi - Hellisheiðarvirkjun


Forseti ræðir við fulltrúa japanska fyrirtækisins Mitsubishi og fulltrúa umboðsaðila þeirra og Orkuveitu Reykjavíkur en verið er að gera samning um fleiri vélar frá Mitsubishi til að framleiða rafmagn í Hellisheiðarvirkjun. Það er stærsti samningur sem Mitsubishi hefur gert á heimsvísu á sviði gufuafslvirkjana. Rætt var um möguleika á víðtæku samstarfi japanskra og íslenskra aðila á sviði endurnýjanlegrar orku en forseti átti nýlega fund með sendiherra Japans í New York um það efni.