Veftré Print page English

Japanskir blaðamenn


Forseti ræðir við blaðamenn frá japönsku tímariti sem helgað er umfjöllun um menningu og alþjóðamál. Rætt var um hvernig fordæmi Íslendinga getur nýst í baráttunni við loftslagsbreytingar og hvaða áhrif menning og hugsunarháttur hafa á viðhorf einstaklinga og þjóða til þessarar nýju hættu. Blaðamennirnir dvelja á Íslandi í nokkra daga og safna efni í ítarlega umfjöllun um Ísland.