Veftré Print page English

Útflutningsverðlaun - Heiðursverðlaun


Forseti afhendir Útflutningsverðlaun forseta Íslands á Bessastöðum. Verðlaunin hlaut Baugur-Group fyrir glæsilegan árangur á alþjóðlegum markaði. Verðlaununum fylgir listaverk eftir Huldu Hákon. Jafnframt voru þremur einstaklingum veitt heiðursverðlaun fyrir stuðning við kynningu á Íslandi en þeir eru fulltrúar fyrir þá fjölmennu sveit í opinberri þjónustu, vísindum og menningu sem á margvíslegan hátt hefur stutt sókn íslenskra fyrirtækja á alþjóðlegan markað. Heiðursverðlaunin hlutu Einar Benediktsson sendiherra, dr. Rögnvaldur Ólafsson dósent og Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður. Myndir