Veftré Print page English

Sendiherra Albaníu


Forseti á fund með nýjum sendiherra Albaníu á Íslandi, hr. Ruhi E. Hado, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um aukna samvinnu landanna og m.a. áhuga Landsvirkjunar á að taka þátt í nýtingu vatnsafls í Albaníu. Sendiherrann áréttaði einnig nauðsyn þess að Albanía yrði fullgildur aðili að samtökum vestrænna ríkja, bæði á sviði varnarmála og efnahagsmála.



Sendiherra Albaníu,  hr. Ruhi E. Hado afhendir trúnaðarbréf.