Veftré Print page English

Mahmoud Abbas á Íslandi


Mahmoud Abbas forseti palestínsku stjórnarinnar verður á Íslandi á morgun þriðjudaginn 22. apríl. Hann mun eiga fund með forseta Íslands og snæða hádegisverð á Bessastöðum. Síðdegis mun hann eiga fund með Ingibjörg Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra. Abbas er á leið til Bandaríkjanna til fundar við George Bush forseta í Washington. Nánar verður tilkynnt um tímasetningar atburða í fyrramálið.