Veftré Print page English

Netþjónabú í Þorlákshöfn


Forseti á fund með fulltrúum fyrirtækisins Greenstone sem áforma að reisa hátæknivætt netþjónabú í Þorlákshöfn. Undirritaðir voru samningar við Landsvirkjun og Farice um verkefnið. Rætt var um hvernig Ísland getur nýtt sér margvísleg tækifæri í upplýsingatækni en rekstur netþjónabúa þjónar í senn heimsmarkaði og laðar að margvísleg önnur fyrirtæki. Framboð á hreinni orku styrkir stöðu Íslands á þessum vettvangi.