Veftré Print page English

Ásgeirsbikarinn


Forseti afhendir nýjan bikar á Íslandsmeistaramóti Sundsambands Íslands. Bikarinn ber heitið Ásgeirsbikarinn og er gefinn af forseta í minningu um Ásgeir Ásgeirsson forseta Íslands 1952-1968 en hann var mikill áhugamaður um sundíþróttina. Bikarinn er farandbikar sem veittur verður næstu 50 ár og leysir af hólmi bikar sem Ásgeir gaf fyrir 50 árum.