Forseti Íslands
The President of Iceland
Ráðstefna um Forvarnardaginn
Forseti setur ráðstefnu um niðurstöður Forvarnardagsins.
Inga Dóra Sigfúsdóttir forseti Kennslufræði- og
lýðheilsudeildar Háskólans í Reykjavík kynnti skýrslu sem Rannsóknir og greining hafa unnið úr svörum þúsunda grunnskólanemenda. Þá tóku til máls Ólafur F. Magnússon borgarstjóri, Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ, Helga G. Guðjónsdóttir formaður UMFÍ, og Margrét Tómasdóttir skátahöfðingi og sögðu þau álit sitt á niðurstöðunum. Að því loknu voru almennar umræður og forseti Íslands sleit síðan árangursríkri ráðstefnu.
Letur: |
| |