Veftré Print page English

Sjálfboðastarf Rauða krossins


Forseti á fund með forstöðumönnum Rauða krossins, Kristjáni Sturlusyni og Ómari Kristmundssyni, um árangurinn af landskynningu á sjálfboðastarfi Rauða krossins sem fram fór síðastliðið haust og þá lærdóma sem draga má af henni. Einnig var rætt um alþjóðaverkefni Rauða krossins bæði í Afríku og Palestínu sem og væntanlegan fund helstu aðildarríkja Rauða krossins sem haldinn verður á Íslandi í haust.