Malasía
Forseti á fund með nýjum sendiherra Malasíu á Íslandi, hr. Dato' Kamarudin bin Mustafa, sem afhendir trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um aukna áherslu Íslands á samstarfi við ríki í Asíu og lýsti sendiherra hvernig Malasía hefur nýtt sér árangur af reynslu Íslendinga í sjávarútvegi. Þá var einnig rætt um samstarf á ýmsum öðrum sviðum, svo sem menntun, rannsóknum og lyfjaframleiðslu.