Veftré Print page English

Íslensku menntaverðlaunin - dómnefndir


Skipað hefur verið í nýjar dómnefndir Íslensku menntaverðlaunanna. Í dómnefnd sem fjallar um kennara eru Haraldur Finnsson fv. skólastjóri, Ólína Jónsdóttir fv. aðstoðarskólastjóri, Hafrún Dóra Júlíusdóttir fv. formaður skólanefndar Hafnarfjarðar, Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri og Ólafur H. Jóhannsson lektor við Kennaraháskóla Íslands. Í dómnefnd sem fjallar um skóla og námsefni eru Trausti Þorsteinsson starfsmaður Háskólans á Akureyri, Birna Lárusdóttir bæjarfulltrúi á Ísafirði, Ellert Borgar Þorvaldsson skólastjóri, Svafa Grönfeldt rektor Háskólans í Reykjavík og Börkur Hansen prófessor við Kennaraháskóla Íslands. Skipunin er samkvæmt reglugerð um Íslensku menntaverðlaunin.