Veftré Print page English

Viðtal á Al Jazeera sjónvarpsstöðinni


 Þátturinn var tekinn upp í höfuðstöðvum sjónvarpsstöðvarinnar í Doha í Katar við lok opinberrar heimsóknar forseta Íslands til landsins í síðustu viku.

 Al Jazeera er áhrifaríkasta sjónvarpsstöð í arabaríkjunum og hefur útbreiðslu um allan heim. Áætlað er að rúmlega 50 miljónir manna horfi reglulega á hina arabísku útgáfu stöðvarinnar. Ensk útgáfa hennar hefur á skömmum tíma orðið ásamt CNN og BBC ein áhrifaríkasta sjónvarpsstöð í veröldinni.

 Í samræðuþætti Al Jazeera með forseta Íslands er fjallað um loftslagsbreytingar, einkum á norðurslóðum, nauðsyn nýrrar orkustefnu sem leggur áherslu á nýtingu hreinna orkulinda, framboð Íslands til Öryggisráðsins og þróun mála í Miðausturlöndum, stöðu Ísraels og Palestínu, sambúð ólíkra menningarheima og trúarbragða, deilurnar um dönsku skopteikningarnar og mótmæli múslima gegn þeim, nauðsyn á gagnkvæmum skilningi og bættum samskiptum þjóða heims og tækifæri sem smærri ríki eins og Ísland og Katar og Abu Dhabi hafa til að styrkja stöðu sína með því að efna til sameiginlegra verkefna á mörgum sviðum.