Ferð forseta til Persaflóaríkja
Forseti mun í þessari viku taka þátt í Heimsráðstefnu um framtíð orkumála, World Future Energy Summit, sem haldin er í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum 20.-22. janúar. Hann mun þvínæst fara í opinbera heimsókn til Katar. Það verður í fyrsta sinn sem forseti Íslands fer í opinbera heimsókn til ríkis í arabaheiminum. Heimsóknin til Katar stendur dagana 22.-25. janúar.
Í för með forseta eru Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, embættismenn frá iðnaðarráðuneyti, utanríkisráðuneyti og forsetaembættinu og fjölmargir fulltrúar íslenskra fyrirtækja.
Heimsráðstefnan um framtíð orkumála sem haldin er í Abu Dhabi er hin fyrsta sinnar tegundar, en forystumenn landsins leggja nú ríka áherslu á að efla alþjóðlega samvinnu um framtíð orkumála, einkum varðandi nýtingu hreinnar orku. Abu Dhabi hefur orðið eitt af auðugustu löndum heims í krafti olíuauðlinda sinna og hefur ákveðið að ráðstafa verulegum hluta þeirra tekna til að efla samvinnu um menntun, vísindi og fjárfestingar í hreinum orkulindum víða um heim.
Til ráðstefnunnar er boðið þjóðarleiðtogum, ráðherrum, áhrifamönnum í alþjóðlegu viðskiptalífi, stjórnendum banka og orkufyrirtækja og fjölda vísindamanna og sérfræðinga. Margir áhrifamenn frá arabalöndunum sækja ráðstefnuna.
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flytur ræðu á opnunarfundi ráðstefnunnar og tekur þátt í umræðum. Þá mun Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra einnig flytja ræðu á ráðstefnunni.
Forseti situr einnig, ásamt forseta Djíbútís, Ismail Omar Guelleh, sérstakan kynningarfund sem haldinn verður í Abu Dhabi um jarðhitasamvinnu Íslands og Djíbútís. Lagður var grundvöllur að þeirri samvinnu í heimsókn forseta Djíbútís til Íslands í febrúar í fyrra. Við það tækifæri var undirritaður samningur Orkuveitu Reykjavíkur við stjórnvöld í Djíbútí um rannsóknir og nýtingu jarðhita sem gerbreytt gæti orkubúskap þessa fátæka Afríkuríkis.
Opinber heimsókn forseta til Katar hefst með hátíðlegri móttökuathöfn síðdegis þriðjudaginn 22. janúar. Á dagskrá heimsóknarinnar eru viðræðufundir með þjóðarleiðtoga Katar Hamad Bin Khalifa Al Thani og öðrum forystumönnum landsins og þátttaka í samræðum um tækifæri smárra ríkja í hagkerfi 21. aldar.
Þá munu forseti og íslenska viðskiptasendinefndin hitta fulltrúa fyrirtækja í Katar, en Útflutningsráð hefur annast undirbúning þeirra funda. Forseti mun auk þess taka þátt í hádegisverði í boði Kaupþings og heimsækja skrifstofur bankans. Þá mun forseti kynna sér starfsemi sjónvarpsstöðvarinnar Al Jazeera sem náð hefur heimsathygli sem einn helsti fréttamiðill arabalanda.