Veftré Print page English

Eyrarrósin


Eyrarrósin verður afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag fimmtudaginn 10. janúar kl 15:00.

Eyrarrósin er sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni sem Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands hafa sett á stofn. Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú og mun hún afhenda viðurkenninguna og verðlaunagripinn.

Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2008: Safnasafnið, Svalbarðsströnd, Aldrei fór ég suður, tónlistarhátíð á Ísafirði og Karlakórinn Heimir í Skagafirði. Eitt þessara verkefna hlýtur verðlaunafé að upphæð 1,5 miljónir króna og verðlaunagrip sem Steinunn Þórarinsdóttir myndlistarkona hefur gert.

Fréttamönnum og ljósmyndurum er velkomið að vera viðstaddir athöfnina á Bessastöðum, en nánari upplýsingar um Eyrarrósina veita Hrefna Haraldsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir hjá Listahátíð í Reykjavík í síma 561 2444.