Veftré Print page English

Morðið á Benazir Bhutto


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna morðsins á Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans:

„Morðið á Benazir Bhutto er hörmuleg áminning um fórnirnar sem einatt eru færðar þegar reynt er að festa lýðræði í sessi.

Benazir Bhutto var virtur leiðtogi sem varaði eindregið við hryðjuverkum og öfgaöflum. Hún var hámenntuð og víðsýn; því kynntist ég vel í samræðum okkar á fyrri árum, geislaði af orku og baráttukrafti. Hún hafði djúpan skilning á sameiginlegum hagsmunum Vesturlanda og ríkja sem aðhyllast múhameðstrú. Með dauða hennar hafa sáttaöflin misst öflugan forystumann.

Ég votta fjölskyldu Benazir Bhutto og pakistönsku þjóðinni einlæga samúð mína.”