Veftré Print page English

Tällberg stofnunin


Forseti á fund með fulltrúum Tällberg stofnunarinnar í Svíþjóð sem eru að skipuleggja alþjóðlegan leiðtogafund um loftslagsbreytingar, orkumál og umsköpun hagkerfa og þjóðfélagshátta til að draga úr hættunni á hinum hrikalegu afleiðingum loftslagsbreytinga. Fundinn myndu sækja þjóðarleiðtogar, forystumenn í alþjóðamálum, sérfræðingar, vísindamenn og stjórnendur á vettvangi atvinnulífs.