Vormenn Íslands, afmælisrit UMFÍ
Forseti tekur við fyrsta eintaki af bókinni Vormenn Íslands eftir Jón M. Ívarsson. Þar er rakin saga
Ungmennafélags Íslands í hundrað ár. Bókin var afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum að viðstaddri fjölmennri forystusveit UMFÍ víða að af landinu.