Veftré Print page English

Sendiherra Filippseyja


Forseti á fund með nýjum sendiherra Filippseyja á Íslandi, frú Victoriu S. Batacaln, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Á fundinum var vikið að þátttöku forseta Filippseyja og forseta Íslands í heimsleikum Special Olympics sem nýlega voru haldnir í Shanghai í Kína og mikilvægi leikanna fyrir hagsmunabaráttu seinfærra og þroskaheftra. Einnig var vikið að samvinnu landanna á sviði jarðhitanýtingar og heimsókn iðnaðarráðherra Íslands til Filippseyja um þessar mundir. Lýsti sendiherrann miklum áhuga á að styrkja það samstarf. Forseti ræddi einnig um framlag filippeyska samfélagsins á Íslandi til aukins fjölbreytileika íslenskrar menningar og þjóðlífs.



Forseti Íslands ásamt sendiherra Filippseyja, frú Victoriu S. Batacaln.