Veftré Print page English

Sendiherra Belgíu


Forseti á fund með nýjum sendiherra Belgíu á Íslandi, hr. Christian Monnoyer, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Á fundinum var rætt um þróun Evrópusamstarfsins á næstu árum og samvinnu þjóða við Atlantshaf. Breytingar innan Evrópu og á varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna ykju nauðsyn á nánari samræðum fulltrúa stjórnvalda á Íslandi og í Belgíu.



Forseti Íslands ásamt sendiherra Belgíu, hr. Christian Monnoyer.