Veftré Print page English

Sendiherra Póllands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Póllands á Íslandi, hr. Vojcieck Kolanczyk, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Á fundinum var rætt um hið fjölmenna samfélag Pólverja á Íslandi og framlag þess til atvinnulífs og menningar. Einnig um nauðsyn á aukinni samvinnu landanna í norðanverðri Evrópu og áhuga Pólverja á að styrkja tengsl við Norðurlönd og Eystrasaltsríkin.



Forseti Íslands ásamt sendiherra Póllands, hr. Vojcieck Kolanczyk.