Veftré Print page English

Kynningarvika Rauða krossins


Forseti tekur þátt í kynningarviku Rauða krossins, heimsækir samtökin á Suðurnesjum og opnar nytjamarkað í húsnæði Suðurnesjadeildar Rauða krossins. Markaðurinn hefur fengið nafnið Kompan og rennur hagnaðurinn til mannúðarmála. Að því loknu heimsækir forseti Rauða krossinn í Grindavík og fer ásamt sjálfboðaliðum í verslunarmiðstöðina Nettó og aðstoðar þá við öflun nýrra sjálfboðaliða.