Veftré Print page English

Fundur með borgarstjóra Los Angeles


Forseti á fund með borgarstjóra Los Angeles, Anthony Villaraigosa, þar sem rætt var um ýmis verkefni sem aukið geta hlutfall hreinnar orku í orkubúskap Los Angeles og Kaliforníuríkis. Borgarstjórinn fagnaði samvinnu við Íslendinga á þessu sviði og þáði boð forseta um að koma í heimsókn til Íslands til að kynna sér nánar árangur Íslendinga í orku- og umhverfismálum. Fundinn sátu einnig íslenskir og bandarískir forsvarsmenn IAE og varaborgarstjóri Los Angeles sem ber ábyrgð á orku- og umhverfismálum í borginni.