Veftré Print page English

Fálkaorðan - Rannsóknir á íslenskri náttúru


Forseti Íslands sæmdi dr. Jack Ives riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir rannsóknir á náttúru landsins og samvinnu við íslenska fræðimenn. Dr. Jack Ives hefur í hálfa öld stundað víðtækar rannsóknir á Íslandi. Þar ber hæst framlag hans til Skaftafells-þjóðgarðsins, rannsókna í Öræfum og á íslenskum jöklum.

Á þessu ári kemur út bók eftir dr. Jack Ives sem helguð er fjörtíu ára afmæli þjóðgarðsins og fjallar hún um 1000 ára sögu Skaftafells. Dr. Jack Ives átti á sínum tíma víðtaka samvinnu við Ragnar Stefánsson í Skaftafelli og aðra Öræfinga.



Forseti Íslands og Jack Ives á Bessastöðum