Opinber heimsókn til Rúmeníu
Forseti Íslands mun á morgun þriðjudaginn 18. september halda í opinbera heimsókn til Rúmeníu. Heimsóknin stendur dagana 19.-20. september og er þetta er í fyrsta skipti sem forseti Íslands fer í opinbera heimsókn til Rúmeníu. Á undanförnum árum hafa myndast allmikil tengsl milli landanna og viðskipti þeirra farið vaxandi.
Fréttatilkynning