Veftré Print page English

Framhaldsskólinn á Húsavík


Forseti tók þátt í afmælishátíð Framhaldsskólans á Húsavík. Skólinn var stofnaður fyrir 20 árum. Forseti flutti ávarp í sérstakri hátíðardagskrá og fjallaði m.a. um tækifæri skólans í ljósi nýrrar áherslu á samspil menntunar og umhverfis og aukins mikilvægis norðurslóða. Slíkt skapaði norðlægum byggðum og menntasetrum fjölda nýrra tækifæra.