Veftré Print page English

Sendiherra Kína


Forseti á fund með nýjum sendiherra Kína á Íslandi, hr. Zhang Keyuan  sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um þann mikla árangur sem náðst hefur í samskiptum landanna á undanförnum árum, margvísleg verkefni sem voru staðfest með samningum í opinberri heimsókn forseta til Kína og þær viðræður sem fram hafa farið um aukna hlutdeild Íslands í nýtingu jarðvarma í Kína. Þá var rætt um væntanlega heimsókn forseta Íslands til Kína í október þegar hann sækir heimsleika Special Olympics í Sjanghai og fundi sem forseti mun eiga með ýmsum kínverskum áhrifamönnum í þeirri ferð.