Veftré Print page English

Alþjóðaforseti Lions


Forseti á fund með alþjóðaforseta Lions Mahendra Amarasuriya og forystusveit íslensku Lionshreyfingarinnar um starfsemi hreyfingarinnar á alþjóðavettvangi, baráttuna gegn blindu og augnsjúkdómum og þann mikla árangur sem íslenska Lionshreyfingin hefur náð í fjársöfnun í þágu baráttunnar gegn blindu í heiminum. Einnig var rætt um önnur viðfangsefni Lionshreyfingarinnar og hvernig hægt er að auka þátttöku yngra fólks í starfsemi hennar. Alþjóðaforsetinn er frá Sri Lanka og hafði einnig áhuga á hvernig land hans getur lært af reynslu Íslendinga í sjávarútvegi.