Veftré Print page English

Huawei á Íslandi


Forseti á fund með fulltrúum kínverska símafyrirtækisins Huawei sem vinna nú náið með íslenskum fyrirtækjum að þróun farsímakerfis á Íslandi. Huawei hefur einnig opnað sérstaka skrifstofu á Íslandi og leggur íslenskum símafyrirtækjum til sérfræðinga og tæknimenn. Samningur um samvinnu Huawei og íslenskra aðila var undirritaður í opinberri heimsókn forseta til Kína fyrir tveimur árum að viðstöddum Hu Jintao forseta Kína. Á fundinum voru einnig fulltrúar Vodafone sem gerðu grein fyrir þeim ávinningi sem fyrirtækið hefur af samvinnu við Huawei.