Veftré Print page English

Indversk kvikmyndafyrirtæki


Forseti á fund með Amit Khanna stjórnarformanni Reliance Entertainment en fyrirtækið er hluti af Reliance keðjunni sem er eitt stærsta fyrirtæki Indlands. Hann situr jafnframt í ráðgjafanefnd indverskra stjórnvalda um þróun fjölmiðlunar og skemmtanaiðnaðar og er forseti samstarfsráðs indverskra kvikmyndaframleiðenda. Á fundinum var einkum rætt um möguleika indverskra kvikmyndafyrirtækja til að gera myndir að hluta eða öllu leyti á Íslandi og nýta sér náttúru landsins, hæfileikaríkt íslenskt kvikmyndagerðarfólk og hagstæð rekstrarskilyrði.