Veftré Print page English

Kynning á hreinni orku


Forseti var viðstaddur kynningu á nýtingu hreinnar orku sem fram fór í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur. Kynningin var ætluð James Wolfensohn fyrrum bankastjóra Alþjóðabankans og samstarfsmönnum hans sem eru hér á landi til að kynna sér möguleika á samvinnu íslenskra fyrirtækja við alþjóðlegar fjármálastofnanir, einkum með tilliti til nýtingar á hreinni orku í þróunarlöndum.