Veftré Print page English

Heimsókn James Wolfensohns


Forseti á viðræður við James Wolfensohn fyrrum bankastjóra Alþjóðabankans sem heimsækir Ísland ásamt samstarfsmönnum sínum. Wolfensohn stýrir nú öflugum fjárfestingarsjóði á sviði hreinnar orku og er ráðgjafi erlendra fjármálastofnana á því sviði. Í heimsókn sinni kynnir hann sér starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja og ræðir við fulltrúa fjárfestingarfyrirtækja sem áhuga hafa á orkuverkefnum í öðrum löndum. Í tengslum við viðræðurnar bauð forseti Wolfensohn og samstarfsmönnum til kvöldverðar á Bessastöðum.