Veftré Print page English

Sumarskóli Smáríkjaseturs


Forseti tók á móti þátttakendum í Sumarskóla Smáríkjaseturs Háskóla Íslands og ræddi við þá um stöðu smáríkja á alþjóðavettvangi, þróun þeirra og vandamál, einkum með tilliti til þeirra áherslna sem verið hafa í stjórnmálafræði og félagsvísindum á undanförnum áratugum. Einnig var fjallað um ýmsa þætti alþjóðamála, stöðu Rússlands og Evrópusambandið.