Veftré Print page English

Loftslagsbreytingar - Ráðstefna OECD


Forseti flutti í gær ræðu á þingi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD World Forum) sem nú stendur í Istanbul í Tyrklandi. Í ræðu sinni fjallaði forseti um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum og þá lærdóma sem draga megi af nýtingu Íslendinga á endurnýjanlegum orkugjöfum, ekki síst jarðhita. Hann vék einnig að fjölmörgum alþjóðlegum verkefnum í orkuvinnslu sem Íslendingar taka nú þátt í víða um heim.