Veftré Print page English

Fundur með forseta Búlgaríu


Forseti á fund í Istanbul með Georgi Parvanov forseta Búlgaríu en hann tekur þátt í leiðtogafundi Svartahafsráðsins sem haldinn var í Istanbul í vikunni. Forsetarnir ræddu um árangur af auknum umsvifum íslenskra fyrirtækja í Búlgaríu. Parvanov lagði mikla áherslu á að íslensk fyrirtæki ættu áfram ríka hlutdeild í efnahagslegri þróun Búlgaríu. Kynni hans af íslenskum fyrirtækjum hefðu verið afar jákvæð, en þess má geta að forsetinn opnaði ásamt forseta Íslands nýja verksmiðju Actavis í Búlgaríu fyrir fáeinum árum.