Veftré Print page English

Sendiherra Litháens


Forseti á fund með nýjum sendiherra Litháens, Rasa Kairiene, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um hvernig samvinna landanna hefur aukist jafnt og þétt, vaxandi þátttöku íslenskra fyrirtækja í efnahagslífi Litháens og árangurinn sem samvinna Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hefur skilað en þessi átta lönd í Norður-Evrópu geta myndað öflugan hóp. Einnig var rætt um vaxandi fíkniefnavanda í Evrópu og aukin umsvif glæpahringa og mikilvægi þess að fundnar yrðu nýjar leiðir til að stemma stigu við þessari nýju hættu