Veftré Print page English

Sendiherra Kenía


Forseti á fund með nýjum sendiherra Kenía, Purity Wakiuru Muhindi, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Á fundinum var rætt um jarðhita í Kenía og öðrum löndum Austur-Afríku og möguleika á að nýta hann í krafti þeirrar tækni og reynslu sem Íslendingar hafa aflað sér. Kenía hefur nýtt jarðhita við rekstur gróðurhúsa sem framleitt hafa grænmeti til útflutnings á Evrópumarkað.