Veftré Print page English

Kínverskt orkufyrirtæki


Forseti tekur á móti sendinefnd frá kínverska orkufyrirtækinu Sinopec en það er eitt af þremur stærstu orkufyrirtækjum í Kína og meðal stærstu fyrirtækja í heimi. Sendinefndin er í heimsókn á Íslandi til að ræða við Glitni og íslensk orkufyrirtæki en Sinopec hefur verið helsti samstarfsaðili Glitnis og íslenskra orkufyrirtækja við að reisa hitaveitu í borginni Xian Yang í Kína. Á fundinum var rætt um margvíslega möguleika sem frekara samstarf Íslendinga og Kínverja á sviði hreinnar orku gæti haft í för með sér.