Veftré Print page English

Rockefellerfjölskyldan


Forseti á fund með David Rockefeller sem heimsótti Bessastaði ásamt börnum sínum og barnabörnum en fjölskyldan hefur verið í sérstakri kynnisferð á Íslandi. Rætt var um árangur Íslendinga á sviði viðskipta og orkunýtingar, þróun þjóðfélagsins frá fátækt til velmegunar, skipulag heilbrigðisþjónustu og menntamála og ýmis sérkenni íslenskrar náttúru.