Veftré Print page English

Keppnisgreinar á smáþjóðaleikum


Forseti var í gær og í dag viðstaddur keppni í fjölmörgum íþróttagreinum á smáþjóðaleikunum sem fram fara í Mónakó en rúmlega 100 íslenskir íþróttamenn taka þátt í leikunum og hefur árangur þeirra verið mjög góður og  fjölmörg verðlaun fallið í hlut Íslendinga. Forseti afhenti verðlaun á smáþjóðaleikunum. Í gærkvöldi voru forsetahjónin heiðursgestir í kvöldverði sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands efndi til þar sem þjálfarar, fararstjórar og forystusveitir sérsambanda og Íþrótta- og Ólympíusambandsins voru meðal gesta. Sjá einnig Vefsíðu ÍSÍ.