Veftré Print page English

Carbon Rock


Forseti á fund með Wally Broecker og Jürg Matter frá Columbiaháskóla um rannsóknarverkefni á sviði kolefnisbindingar sem þeir hafa unnið að í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur, Háskóla Íslands, Háskólann í Toulouse og fleiri. Verkefnið felur í sér að koltvísýringi er breytt í fast efni með því að dæla honum niður í iður jarðar þar sem hann hvarfast við basalt og myndar silfurberg.