Veftré Print page English

FL Group - skrifstofa í Kaupmannahöfn


Forseti opnar nýja skrifstofu FL Group í Kaupmannahöfn að viðstöddum fjölda áhrifamanna úr íslensku og alþjóðlegu viðskiptalífi. Í ávarpi sínu ræddi forseti um nýja áfanga í útrás íslenskra fyrirtækja og samvinnu þeirra við alþjóðlega fjárfesta og vék einnig að hlutdeild FL Group í stofnun Geysir Green Energy og þeim miklu möguleikum sem fælust í nýtingu á hreinni orku. Þá greindi forseti frá fróðlegum samræðum sem hann hefði átt í nýlegum ferðum til Bandaríkjanna við fjölmarga áhrifamenn um sama efni.