Veftré Print page English

Jöklarannsóknir


Forseti á fund með íslenskum jöklafræðingum um rannsóknir á þróun íslenskra jökla, einkum með tilliti til loftslagsbreytinga, og alþjóðleg verkefni sem íslenskir vísindamenn hafa tekið þátt í á undanförnum árum. Einnig var rætt um hvernig efla mætti rannsóknir á jöklum og ísbreiðum í Himalajafjöllum og áhrifum breytinga á vatnabúskap og fæðuöflun Indverja. Slíkt rannsóknarverkefni gæti tengst Þróunarráði Indlands og í nýlegri heimsókn til Bandaríkjanna ræddi forseti við bandaríska vísindamenn um þetta efni.